Jæja þá...
Núna er komið að fyrsta hluta af
ferðasögunni okkar J
Ég og Julio lögðum af stað til New
york á miðvikudaginn um 5 leitið.
Það hefur gengið mikið á hjá
okkur.
Flugið hjá okkur var nokkurn veginn á
áætlun og við skiluðum okkur niður á JFK flugvöll um 6 leiðið á
staðartíma..
Þar tók við gríðarleg umferðateppa og
urðum við að bíða í flugvélinni meðan hún reyndi að komast yfir
nærliggjandi flugbrautir og akstursleiðir.
Þegar við nálguðumst hliðið reyndist
önnur vél vera í okkar stæði og við urðum að bíða dálítið
lengur.
En á endanum hafðist þetta og við
komumst út úr flugvélinni..
Þá náðum við í farangurinn okkar og
skelltum okkur inn í Airtrain..
Auðvitað fórum við í vitlausa lest
sem fór bara í hringi .. en vopnaðir hermenn bentu okkur á hvert
við ættum að fara og hvaða lest ætti að taka..
Þetta reddaðist mjög fljótt þegar við
vorum komir í rétta lest J
þá var komið að næsta faraskjót..
Shuttle bus.. beint á hótelið.. Complimentari
J
við komumst seinna að því að þetta
var líklega það eina góða við þetta hótel.. sem var ekkert svo
ódýrt.
Við stigum inn í eðalvagninn og þar
sat inni indversk fjölskylda, Móðir, faðir og tvær gullfallegar
litlar stelpur..
Á meðan við sitjum þarna beint á móti
fjölskyldunni að bíða eftir brottför fer minnasta stelpan sem sat í
fanginu á móðir sinni að æla á fullu 
Faðir hennar greip einhvert tusku
snepill og reyndi að stöðva ósköpin en allt var fyrir ekki og
stúlkan létt vaða.
Ég skoppaði fram í vanginn til að fá
smá pappír til að aðstoða faðirinn og á endanum stoppaði þetta og
tókst að þrífa þetta upp.
Svo var lagt afstað á hótelið.. en
eftir aðeins eina mínótu var snúið til baka því einhver hringdi..
það reyndist auðvitað vera vitleysa þannig við heldum áfram aftur á
hótelið.
Þegar þangað var komið var ekki mikið
að sjá.. frekar lítið hótel sem var ekkert sérstaklega geðslegt...
en við létum okkur auðvitað hafa það... enda búnir að borga fyrir
þetta...
Við hentum farangrinum inn og
skelltum okkur út í leit að ipod fyrir bróðir hans
Julio..
Auðvitað vissum við ekkert hvert ætti
að fara.. þannig við skelltum okkur inn í Burger king og spurðum
afgreiðslufólkið þar... en enginn kannaðist neitt við
þetta..
Við spurðum á hótelinu og þar var
maðurinn ekki svo viss.. en annar gaur sem stóð þarna hjá vissi
nákvæmlega hvað við ættum að gera..
Þá var reynt að leggja afstað í næstu
Radioshack.. en við fundum enga leigubíla.. þannig við ætluðum að
biðja hótelið að hringja.. þá segir kappinn sem vissi allt um málið
að hann væri leigubíll.. og við hoppuðum upp í þennan ómerkta
Lincon bíl.. og hann brunaði með okkur í bæjinn
J
Auðvitað leyst okkur ekkert á þetta og ég komst að því seinna um
kvöldið að Julio var hreinlega skíthræddur við þennan kappa sem var
annars nokkuð myndarlegur og afskaplega yndæll...
Hann reyndist vera eins góður og ég
taldi vera og við skiluðum okkur á réttan stað og fundum Ipodinn
okkar...
Skelltum okkur líka inn í mall sem
var þarna nálægt.. aðeins til að skoða J
Næst var það leigubíll heim aftur..
Rockaway Blvd and 153 street.
Þetta var allt ágæt
J
Við komumst heim.. pöntuðum pizzu sem
var annað ævintýri.. og fórum að sofa J