did you know...

what I have to say ;)

16.12.2006 21:27:21 / addifr

Mexico 2.hluti

 

 

 



Síðan tók við flug morgunninn eftir til Mexico City.

 

 



Við fengum miða.. skelltum okkur í röðina fyrir tollskoðun..
Kerlinginn tekur vegabréfinn okkar og haldur á mínu.. lítur á Julio og segir... Is this you?  ... ekkert svo líkir.. .. en svona er fólk skrítið..

 

 



Auðvitað var þetta ég... og þurfti ég að fara í ýtarlegri skoðun.. opna töskuna mína.. káfa léttilega á mér.. og þetta helsta J

 

 



Flugið var klukkutíma á undan áætlun þannig það var allt gott..

 

 



Nema auðvitað að því seinkaði síðan aðeins í fluginnu enda held ég að kappinn hafi ekki alveg vitað hvert hann var að fara því þetta var endarlaust Zikk Zakk

 

 



Tengiflugið okkar átti að fara í loftið ca 2 tímum eftir þessu flugi en þar sem flugið okkar var lengur á leiðinni var þessi tími styttri og héldum við í smá stund að við værum búnir að missa af fluginu.

 

 



Julio lét mig hlaupa eftir öllum flugvellinum að leita að rétta hliðnu og það gekk frekar erfilega að finna hliðið.. þegar við vissum loksins hvaða hlið þetta var.. þá þurftum við auðvitað að hlaupa til baka.. og viti menn. Þarna var hliðið og flugvélinn ekki kominn.. áætluð bording.. eftir ca 30 mín J

 

 



Flugið var stutt og yndælt.. um 2 tímar.. og við fengum þessa líka ógeðslegur samloku að borða J

 

 



Þegar flugvélin byrjaði að lækka flugið.. byrjaði stressið aðeins að færast yfir mig..

 

 



Við löbbum út úr vélinni.. eftir flugvellinu og að færibandinu..

 

 



Nokkrar töskur koma.. gaurinn inni  gerir einhverar bendingar til að spyrja hvort allt sé komið. Og Si.. auðvitað voru okkar töskur ekki með!!!

 

 



Orðnir sveittir og illa lyktandi og ekki með nein föt.. góð fyrstu kynni fyrir nýja fjölskyldu J

 

 



Þegar við komum svo út með engan farangur og illa lyktandi tók á móti okkur heilt sveitafélag af fólki.. hundrað frændur og frænkur. Afar og ömmur. Vinir og nágranara og einhverir tilfallandi aðilar sem voru bara óvart á svæðinu J

 

 



Þegar búið var að fá upplýsingar að töskurnar kæmu á morgun var lagt afstað heim.. og í sturtu J

 

 



Þegar við vorum búir að þrífa okkur og fá föt lánuð hjá Cesar bróðir hans Julio var farið niður og beint í smá fjölskyldu party.. Pabbi hans og  Cesar voru að elda nautakjöt.

Mamma hans og frænkur voru að græja einhverja súpu sem ég treysti mér ekki í...

 

 



Pabbi hans Julio bjó líka til eitthvað grænmeti.. svona gúrkur og eitthvað drasl skorið í bita og sett í einhverja spice sósu..
ég treystii mér heldur ekki í það því ég horfði á ömmu hans vera drepast þegar hún var að borða þetta.. en það er víst gott að vera alveg að líða yfir mann þegar maður borðar eitthvað svona. En ég hefði líklega bara látist á staðnum... kannski næst
J

 

 



Þegar maður var búinn að heilsa öllum og kyssa allar stelpur á svæðinu.. segja fullt af Si við einhverju sem maður skildi engan veginn þá var haldið afstað á skemmtistað með félögum hans Julio.

 

 



Fyrst var stoppað á einhverjum Model skemmtistað sem var með einhverja tískusýningu. Og svo á næsta skemmtistað fyrir svona vitleysinga eins og okkur J

Lilti ljóshærði íslendingurinn vakti auðvitað smá athygli og ég er enþá að venjast því að sjá stelpur næstum snúa sig úr hálslið þegar ég labba framhjá..

Veit ekki enþá hvort það sé vegna þess að ég sé svona rosalega sætur eins og allir íslendingar ;)  eða að ég líti hreinlega út eins og geimvera fyrir þessu fólki J

 

 



Þegar við vorum orðnir nógu andskoti þreyttir fórum við heim.. og ég steindrapst með það sama.. hef held ég aldrei sofið eins fast J


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Fallhlífastökk
Myndasafn